1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
1 dl sólblómafræ
1 tsk birkifræ
1 tsk salt
2 tsk vínsteinslyftiduft
1 dl kúfaður spelt, heilhveti eða bókhveiti
1 dl vatn
1/4 dl olía
Allt hrært saman og smurt mjög þunnt út á bökunarpappír. Gott að fletja þetta út á milli tveggja pappírsarka. Skerið kexið út með pizzahjóli áður en það er bakað.
Bakað við 200°c í ca 15 mín.eða þar til kexið er orðið gullið á lit.
Látið kólna á rist.
Virkilega vel gert SP.
SvaraEyðaÞessa uppskrift er líka hægt að gera LCHF væna með því að setja smá husk og eitthvað annað mjöl í stað hveitis.
SvaraEyða